askauf
Ég....

...heiti Áslaug Baldursdóttir
...er fædd 11. júní 1985
...er tveggja barna móðir
...á kærasta sem heitir Róberts og er útvarpshetja
...á 3 bræður
...bý í Kópavogi
...er stoltur félagsmálaráðherra Subway-crewsins
...er nörd og gæti ekki verið stoltari
...er með liðað og rottugrátt hár sem ég geri heiminum þann greiða að lita annað slagið
...er voðalega sæt (eftir að hafa málað mig í 3 tíma)
...er eflaust ágætis grey
...er þrjósk, frek og með mjög sterkar skoðanir á hlutunum
...fel ekki þær sterku skoðunum fyrir neinum, hvort sem fólk vill heyra eða ekki
...er með msn og adressan er: Askauf@hotmail.com ef þú hefur áhuga á að heyra mínar skoðanir eða bara spjalla við mig ;)
   

<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31

The WeatherPixie








Free Web Counter






Sign my Guestbook from Bravenet.com
 Get your Free Guestbook from Bravenet.com


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



26.3.07
Ég nennissiggi lengur

Ég er búin að skipta um blogg, aðeins að fara úr html dæminu og yfir í algjörlega hálfvitahelt blogg á blog.central...

Linkur á bloggið er hér

Posted at 16:03 by askauf
Tjáðu þig elskan  

15.3.07
Stel frá Gerði

 fyrst ég nenni engan veginn að blogga ;P

Nafn: Áslaug Baldursdóttir

Fæðingardagur:  11. júní

Stjörnumerki:  tvíburi
Þyngd:  þyngd á hverju?

Hæð: 169

Heimili:  Kópavogur, bráðum Grafarvogur

Foreldrar: Kristrún Erna Erlingsdóttir og Baldur Kjartansson

Systkini: Kjartan, Erling og Hafliði

Íþróttir: helvítis drasl

Draumastarfið: Allt sem inniheldur að vera eigin herra og þurfa ekki að þræla fyrir skitna yfirmenn


Uppáhalds...                                         

Litur:  Blár, svartur og grænn 

Matur: Hryggur held ég bara 

Drykkur:  Bjór

Ávöxturinn þinn:  Ananas, verður að vera ferskur

Staðurinn þinn:  Ísafjörður

Augnablik í lífinu:

Ánægjulegasta: Er ekki viss
Sorglegasta: Ekki viss heldur

Tónlistarmaðurinn: Michael Romeo, Dave Grohl ofl. 

Draumabíllinn:   Það var alltaf Camaro en nú verð ég að segja Previa eða Grand Caravan fyrir fjölskyldufólkið

Leikari:  Jack Black, Adam Sandler
Þáttur:  Gray's anatomy, family guy, american dad, nip tuck, CSI, cold case, lost, desperate housewifes, simpsons

Bíómynd:   Wedding singer, Team America
Bók:  Allt eftir Arnald Indriðason

Dýr:  Hundar

Hefurðu einhvern tíma.....

Strokið að heiman? Nokkrum sinnum já
Valdið einhverjum ástarsorg?  Áslaug heartbreaker

Verið ástfangin? Jamm
Grátið þegar einhver deyr? Já hundurinn minn

Langað í einhvern sem þú veist að þú getur ekki fengið? ójújú

Brotið bein? jamm tvö 

Logið?   margoft


Trúirðu á......

Ást við fyrstu sýn?  stundum

Guð?  Nei

Skrímsli? já, sé þau á hverjum degi

Stjörnuspár?  neibb

Geimverur?  Nei

Drauga?   já

Hvort er betra...

Coke eða Pepsi? kók, diet kók og pepsi max

Blóm eða nammi?  nammi....bara seinna

Hávaði eða næði?  ég allavega þoli ekki hávaða en ég hata þögn

Sundlaugar eða heitir pottar? Heitir pottar

Dökkhærðir eða ljóshærðir strákar? dökkhærðir
 

Buxur eða stuttbuxur? Buxur


Hitt kynið.........

Hverju tekurðu fyrst eftir?  augum, hári og svo hinu
Sítt eða stutt hár?  stutt

Göt einhversstaðar?  alveg sama


Hver...

Fær þig til að hlæja mest?  Smári Lokalokalok...þar á eftir Peter Griffin

Fær þig til að brosa? Nokkurn veginn allir


Hefur þú....

Setið við símann og beðið eftir símtali alla nóttina?  örugglega  

Óskað þess að þú værir önnur en þú ert? já svona eiginlega

Óskað þess að vera karlmaður? já

Óskað þess að líta öðru vísi út? já

Grátið vegna einhvers sem hefur sært þig?  Já

Séð eftir einhverju sem þú hefur gert?  Já


Annað..    

Myndirðu giftast vegna peninga?  Nei

Plokkaru augnbrúnirnar?  jamm

Dreymir þig í lit eða svarthvítt? lit

Manstu fæðingu þína? alveg eins og gerst hefði í gær sko

Hvaða tungumál finnst þér fallegast?  ítalska og íslenska
Hvort líkar þér betur við sólsetur eða sólarupprás??  Sólsetur

Hvort finnst þér betra að hafa slökkt eða kveikt á ljósunum þegar þú horfir á sjónvarpið?  kveikt

Trúirðu á töfra? Nei

Færðu martraðir?  yfirleitt ekki

Finnst þér nefið á þér fallegt?  var akkurat að spá hversu mikið lýtaaðgerð kostar
Hlustaru á tónlist daglega? fyrir mér er lífið ömurlegt án tónlistar

Hvað áttu mörg skópör sem þú notar? 1

Notarðu sömu skóna á hverjum degi?   jamm

Hrýturðu?  svo segir fólk
Hvernig finnst þér best að sofa? með lokuð augun í rúmi
Hvort myndirðu vilja eiga púðluhund eða Rottweiler? Rottu

Hvort finnst þér betra að fara á fín veitingahús eða svona matsölustaði? bara eitthvað nógu djöfull kasúal

Ertu hamingjusöm manneskja? quite the opposite

Hversu sítt er hárið á þér? of stutt

Hvernig viltu að augun í þér séu á litin? brún

Tekurðu einhver lyf? þegar ég er þunn tek ég verkjatöflur já

Ertu ánægð með nafnið þitt?   piff nei 

Talarðu mikið?   Definetly, alltaf og örugglega líka upp úr svefni


Posted at 02:10 by askauf
Ástarjátningar(3)  

12.3.07
Rugl...já mér leiðist

(x) reykt sígarettu
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
(x) stolið bíl (foreldranna)
(x) verið ástfangin/n
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
(x) verið rekin/n
(x) lent í slagsmálum
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum.
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
(x) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
(x) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
(x) skorið þig viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)
(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi
( ) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
(x) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(X) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni!
(x) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) gert þig af þvílíku fífli fyrir framan fullt af fólki
(x) kysst einhvern af sama kyni (sonna meiri en mömmu koss)
( ) farið nakin í sund
(x) rennt þér á grasinu á snjóþotu
(x) verið sett í þvílíkt straff
(x) logið fyrir vini þína
(x) liðið yfir þig
(x) fengið sms frá einhverjum sem þú veist ekkert hver er og byrjað að spjalla við manneskjuna

Posted at 01:24 by askauf
Ástarjátningar(1)  

4.3.07
Kannast einhver við

Að hafa sent heim til mín hálfétna köku og visna rós, skilið eftir á tröppunum eftir að hafa skrifað "Til míns eiginmanns frá þinni ástúðlegu eiginkonu, knús og kossar" og stórt hjarta við hliðina á....btw í hvítu stóru boxi....

Btw, ég er búin að kaupa íbúð í Berjarima, flyt í maí. Er enn sem komið er að vinna á Subway, bæði á Ártúnshöfða og á Bsí, nýju sjoppunni.

Stelpan er komin með nafn en við erum ekki búin að opinbera það...

Ég nenni ekki að skrifa meira í bili...

Posted at 22:42 by askauf
Ástarjátningar(2)  

27.12.06
Keðjurugl sem ég ætlast til að allir svari

 1. Hvað kallarðu mig?

2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?

3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?

4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?

5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?

6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?

7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?

8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?

9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?

10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?

11. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?

12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?

13. Hvernig stráka fíla ég?

14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?

15. Hvað er mest einkennandi við mig?

16. Hvaða búðir elska ég að fara í?

Svona væri mitt líf væntanlega ef það væri bíómynd

Opnunaratriði: The Killers - Mr. Brightside
Þegar þú vaknar: Bibbiddíbabbiddíbú með Brúðubílnum ft. Helga Steffensen

Fyrsti skóladagurinn:
Alice Cooper - School's out for summer
Að verða ástfangin: Mr. Bungle - Retrovertigo

Að hætta saman:
George Michael - I can't make you love me eða Joy division - Love will tear us apart
Árshátíð: Stuðmenn - Tætum og tryllum og nei ekki því þetta er skemmtilegt heldur því þetta er hundþreytt og niðurdrepandi lag, passar eitthvað við árshátíðir
Lífið: Queen - Bohemian Rhapsody og Symphony X - The Odissey
Andlegt áfall: Flest lög í spilun á FM gefa manni andlegt áfall og svo er Dreamtheater - Fatal Tragedy mjög svona...eitthvað
Að keyra: The Strokes - Reptilia (eða "keyra-hratt-lagið" sem ég veit ekki hvað heitir)
Flashback: Pelican - "Greiðulagið" eða hvað það heitir nú
Að taka aftur saman: Eagle eye Cherry - Fallin in love again
Brúðkaup: ABBA - I do, I do, I do, I do
Fæðing barns: Sigurrós - Gaddavír
Lokabarátta: Muse - Knights of Cydonia eða Pain of Salvation - Ending theme
Dauðaatriði: Radiohead - Street spirit eða Pain of Salvation - Trace of blood
Jarðafararlag: Sigurrós - Dánarfregnir og jarðarfarir
Lokalag (credit list): The Strokes - The end has no end


Posted at 16:35 by askauf
Ástarjátningar(4)  

19.12.06
Einkunnir

Tilkynningaskyldan bar letina ofurliði svo hér koma þær

Enska 203 - 7
Saga 203 - 8
Bókfærsla 103 - 8
Spænska 103 - 6

Þess má geta að ég fór virkilega vonsvikin út úr bæði sögu- og bókfærsluprófinu þar sem ég gat ekki jackshit og spænskuna lærði ég 2 dögum fyrir próf með því að vaka lengur en normal manneskja gerir og skrifaði svo mikið af glósum að ég sprengdi pennan og er enn að jafna mig í hendinni...

Áslaug brainiac

Posted at 13:36 by askauf
Ástarjátningar(5)  

9.12.06
Vægt áfall...

Nenni ekki að hrauna einhverri svaka færslu inn en langaði að deila með ykkur hversu sjokkerandi það er að vera gáfaður og leyna á sér ;)

Var að fá útúr lokaprófinu mínu í bókfærslu sem ég btw kom hálfgrenjandi útúr því helmingurinn af prófinu var verkefni sem ég hafði ekki einu sinni skoðað í kennslubókinni....

Einkunn úr prófi 9!!!! Næsta einkunn fyrir neðan mig náði í 2....hversu gáfuð er ég þá miðað við alla hina nemendurna í þessum blessaða áfanga?

Ekki nóg með það heldur er ég með 9 í heimaprófinu líka, 9 í 3 verkefnum og 10 í einu verkefni...reyndar 1 í einu þar sem ég skilaði því ekki en KOMMON!! Ég á ekki að fá háar einkunnir í reikningstengdum áföngum, ég skil þetta ekki....

Fyrst og fremst vil ég þakka sjálfri mér fyrir að hafa nennt þessu, Helgu fyrir að hafa gert heiðarlega tilraun til að kenna mér meðan ég var með svefngalsa og mömmu fyrir að passa meðan ég tók prófið. Þess má geta að ég hef aldrei verið svona lengi í prófi áður en ég fór út eftir 1klst og 25 mínútur en próftíminn var 1,5 klst...

Svo er bara spænskan og sagan eftir og þar sem ég kann ekki jackshit í spænsku þá er nú eins gott að drífa sig að læra að telja og segja hvað ég heiti fyrir þriðjudaginn.. ;)

Over and out, gáfaða manneskjan Áslaug

Posted at 23:06 by askauf
Ástarjátningar(2)  

9.11.06
Innbrotsþjófar?

Ætlaði bara að setja inn smá viðvörun, sérstaklega til þeirra sem búa í Kópavogi...
Það var einhver "óprúttinn aðili" sem fór inn í bílinn hjá mér og Erling bróður mínum í nótt...ekkert stórskaði neitt, minn bíll var ólæstur og önnur hurðin hjá bróður mínum biluð. Klink tekið frá honum og 2 geisladiskatöskur frá mér, megnið skrifaðir diskar eða leiðinlegir ;)

Öllu rótað til samt í bílnum og hanskahólfinu en geislaspilarar látnir vera og allt verðmætt þó ótrúlegt sé. Héðinn frændi lenti víst í þessu sama um daginn þar sem klinkinu úr öskubakkanum var stolið og öllu ruslað til en ekkert meira en það og Kristín græna svín fékk líka heimsókn frá honum um daginn og frá henni var tekið bjór og klink og gott ef hún talaði ekki um nammi líka.

Ég er svo heiðarlegur borgari að ég hringdi á löggimann bara til að láta vita, hafði að sjálfsögðu ekkert keis þar sem bíllinn minn var nú einu sinni opinn, og hann vildi meina að það væri faraldur í gangi og þetta virtist vera einhver gaur sem væri að fara inn í bíla og taka alls konar hluti, úr einum bíl hefði hann tekið gleraugu t.d. Semsagt annað hvort útúrdópaður gaur eða bara krakkaandskoti sem kann ekki að bera virðingu fyrir eigum annarra.

Jæja, nóg af biturleika og nöldri, passiði bara upp á dótið ykkar lömbin mín, það ætla ég allavega að gera héðan í frá...

Posted at 20:40 by askauf
Ástarjátningar(5)  

Next Page